Sunday, October 28, 2007

Kominn tími til, er þaggi??

Þetta er ekki hægt lengur að láta þessa #$()%# síðu standa blogg-lausa í fleiri vikur. En beittur hefur verið mikill þrýstingur til að fá mig til að skrifa á síðuna mína. Ég legg til (smá ábending til mín) Þórður Gunnar að þú skrifir oftar og ert með stuttar færslur. Já ég er þér hjartanlega sammála. Það hafa margir vinir mínir og já strákar og stelpur meira segja móðir mín (þessi elska) hafa ýtt við mér og beðið mig um að blogga svolítið. Það sem að hefur drifið hér á daginn í Debrecen er ekki mikið. Það hefur verið skóli og djammað svolítið á milli. Matarboð hafa einnig verið dágóð skemmtan.

En þar sem að ég bý, býr íslensk stúlka fyrir neðan mig og það er hún Magnea. Alveg yndislega manneskja og algjör gullmoli. Ég bjó hjá henni í eina viku meðan á tiltekt stóð í íbúðinni minni. Hún tók við mér eins og ekkert annað værir sjálfsagðara. Hún er líka dugleg að bjóða mér í mat. Ég á enn eftir að launa henni greiðann. Er búinn að redda passa fyrir hana á evrópumeistarmótið í 25m laug sem að haldið verður hérna í bænum mínum í desember. En í desember verið feiki stórt sundmót haldið hérna í Debrecen og allir bestu sundmenn Íslands koma til með að keppa og vonandi að þeim gangi vel. Fyrir ári síðan vann Örn Arnarson til bronsverðlaun í 50m flugsundi og margir töluðu um að það væri endurkoma hans inn í toppinn í sundheiminum og vonandi að það gangi vel núna. Móðir mín kemur með liðinu og verður hérna og það verður æði að fá hana. Ég verð síðan sjálfur á sundmótinu og fylgist með.


En það er lítið að frétta af mér. Kallinn er á lausu baraað láta ykkur vita. En ég vildi að ég gæti komið með svona fréttapistla eins og Grétar en það er annað mál. Ég er bara ekki orðinn það góður í ungverskunni. Ég get pantað mat og svona í gegnum síma og talað við fólk í búðum hvar svona hitt og þetta er, en annað ekki. Þetta tungumál er ekkert grín. Einu fréttirinar sem að ég get komið með er að heim á fróni eins og flestir vita var landsleikur á milli Íslands og Ungverjalands og endaði rimman með jafntefli eða hvort liðið vann sinn leikinn hvort. Þetta var ekki mikið ánægju efni fyrir Ungverja þar sem að þeir voru að nota sína bestu leikmenn eða það er sagt hér í fjölmiðlum. Er almenn óánægja með þessa framistöðu liðsins.



Hér hjá mér hefur verið mikið að gera í lestri. Það var próf núna á dögunum í Medical Chemistry og gekk það alveg bærilega ég fékk þrjá af 5 og er alveg sáttu með það. Síðan var próf í Librarian science og ég fékk fimm af fimm í því. Það er alltaf gefið í einum upp í fimm þar sem að fimm þýðir yfir 85% náð. Síðan var í mjög erfiðu prófi í biostatistics og mér gekk ekki alveg nógu vel. Síðan framundan er próf í Medical Latin sem að er fyrirrennari fyrir anatomíu og í vikunni þar á eftir er próf í biophysics þannig að það er nóg að gera hjá mér þangað til í desember. Ég býst síðan ekki við því að koma heim um jólin þar sem að ég ætla að reyna að ná að taka prófin hér úti sem fyrst og koma heim bara í afslappelsi. Ég verð því einn um jólin. En síðan höfum við verið að djamma líka dáldið hérna. Íslendingarnir eru duglegir að halda party og hefur maður náð að kynnast stórum hluta af íslendingunum hérna.



Ég ætla að enda þessa færslu núna og lofa ykkur því að það verður ekki eins langt í næstu færslu.
Yfir og út

8 comments:

Anonymous said...

Þaddna þekki ég þig. Legg blessun mína á þessa færslu. Annars þarftu ekki að örvænta þó þú verðir úti um jólin, ég er nefnilega búinn að upphugsa handa þér jólagjöf! Þú getur barasta byrjað nú þegar að hlakka til...

Anonymous said...

Þetta er boma!!!! Ætlar hundurinn ekki að koma heim um jólin, hvað með þorláksmessu tónleikana!!! Ég er mjög sárrr!

Doddi said...

Jó jó

Takka fyrir það Hrafnkell er nú þegar farinn að væta buxurnar af spenningi.
En bubbi ég verð bara að hlusta á tónleikana þína á bylgjunni í gegnum netið.
sorry herra kónur I love you.

Anonymous said...

Bliisa man. Það er greinilegt að þú hefur nóg fyrir stafni. Vona að þér gangi sem allra best að lesa og í öllum prófunum. Veistu hvenær þú kemur til landsins í janúar?

Anonymous said...

Er ekki bara um að gera að vera duglegur að læra?
Hvað þýðir sternocleidomastoideus?
Ég vona nú að þú finnir þér eitthvað skemmtilegt að gera um jólin og ég vona að þú verðir ekki aleinn þarna úti (og efast nú um að það gerist).
Láttu heyra í þér ;)

ps.
Úlfur var mjög ánægður með pakkann frá þér :)

Anonymous said...

hvenær helduru þá að þú komir heim? :)

Anonymous said...

Jó Jó mófó hóhó

Anonymous said...

Suddalegt veldi á þessu bloggi marr