Komið þið sæl og blessuð (alveg eins og Jón Ársæll segir ;) )
Ég verð enn og aftur að afsaka það hversu langt hefur liðið á milli færslna hjá mér. En núna er, þegar ég skirfa þessa færslu, 20. sept og nákvæmlega einn dagur í það þangað til að ég kem til með að fagna 22 ára afmælinu mínu. Enda vita nú vonandi einhverjir að ég á afmæli á morgun föstudag þann 21. september.
Á föstudaginn þá er ég búinn með nákvæmlega tvær vikur af skólanum mínum hérna. Fyrsta vikan var ansi skrautleg. Mér hafði tekist að meiða mig illilega á fætinum í læknabolta með íslendingunum, já
strákar mínir það er spilaður fótbolti einnig hér í Debrecen. Þannig að fyrsta skóladaginn minn, hummm þá fór ég ekki í skólann. Ég ákvað að taka smá klíník í staðinn og kynnast því hvernig heilbrigðiskerfið hérna virkar. Það má með sanni segja að þeir noti peningana á réttum stöðum. Húsakosturinn er ekki beint til að hrópa húrra yfir, en er þó fokheldur og með rafmagni, en tækinn sem að þeir nota eru jafnvel flottari en tækin á LSH. Sorry, þeir nota peningana bara rétt.

Þetta er síðan ekki allt. Alla vikuna þurfti ég að skakk labbast á einum fæti þar sem að enginn skildi mig þegar ég bað um hækjur. Þrátt fyrir að hafa tekið meistara takta í actionary þá tókst þeim ekki að skilja mig. Ég þurfti síðan að flytja úr íbúðinni minni til vinkonu minnar hennar Magneu sem að ég dýrka og dái, hún er búin að vera svo góð við mig, útaf því að leigusalinn minn vildi mála og þrífa alla íbúðina mína. Þannig að ég er búinn að vera núna í tæpa viku íbúðarlaus. En þetta fer vonandi að koma og fóturinn minn er allur að koma til.
Þetta er síðan ekki allt saman. Mér tókst síðan að týna veskinu mínu með 60.000 forintum í sem að eru mánðarlaun fólks hérna í Hungary eða að jafngildi 20.000kr. Ég tók veskið e-ð úr rassvasanum mínum og gleymdi því í skólastofunni minni með öllu í því, kortum og tryggingakortum. En þetta endaði þannig að einhver prófessor kom í fyrirlestur hjá mér með 300 manns í og kallaði upp "is Orpur Orvaldsson here" og ég eins og algjör asni en samt með smá tilhlökkun sagði "yes I am right here" og hann spurði mig út í það hvað var í veskinu og lét mig síðan hafa það.
En svona byrjaði skólinn hjá mér. Takk fyrir. En allt er þegar þrennt er. Ég er núna búinn að lenda í þremur stórum óhöppum og núna liggur leiðin upp á við. Ég er núna að stefna á það massa prófin í lok annar og er byrjaður að lesa. Tvö stærstu fögin á þessari önn eru biophysics og síðan Medical Chemistry.
En þessi færlsa er orðin dáldið löng núna og ætla ég að kveðja ykkur núna. Bless bless
13 comments:
Jahérnahér...
Þú ert meira að segja meiri hrakfallabálkur en ég, og þá er nú mikið sagt :)
Sæll sonur sæll,
hjartanlegar hamingjuóskir á afmælisdaginn þinn ... ég sendi þér eina Betty Crocker í tölvupósti :-) Hafðu það sem allra best og láttu þér batna vel í fætinum svo þú getir nú farið að kanna Debrecen á nýja hjólinu!!
Blessaður Þórður,
Til hamingju með afmælið gamli!
Þórður gamli dog!
Til hamingju með afmælið meistari!
Sæll Þórður
Til hamingju með afmælið. Farðu vel með þig gamli og hafðu það gott á afmælisdaginn.
Sæll Thordurgunn! Innilegar hamingjuóskir með daginn!
Auðvitað vitum við hvaða dagur er i dag. Til hamingju með árin 22 það biðja allir að heilsa. Auður Guðjón Sigrún Heiða og Óskar
Enn og aftur til hamingju með daginn kallinn minn. Gaman að lesa færsluna þína þótt það hafi verið leiðinlegt að þú hafir lent í öllum þessum óhöppum. En það sem drepur mann ekki....styrkir mann. En eigum við ekki að reyna að skype-a á sunnudaginn?
Hæ krúsímús. Nu er det Doddis fødselsdag, hurra hurra hurra. Til hamingju með daginn litli minn. Hafðu það gott! ;)
Sæll Doddi og til hamingju með afmælið!
Blessaður Doddi og til hamingju með afmælið.
Ps endilega að setja sem flestar myndir inn. þær segja meira en 1000 orð
kv Fire
til hamingju með afmælið;) p.s.mátt alveg vera duglegri að blogga:)
thordurgunnar.blogspot.com is very informative. The article is very professionally written. I enjoy reading thordurgunnar.blogspot.com every day.
payday loans bc
payday loans
Post a Comment